Málþingið var haldið á þann Netinu 4. desember 2020
Málstofan er haldin í samvinnu við skrifstofu forsætisráðherra og OECD
Mikil þróun á sér nú á sviði þátttökulýðræðis og í fjölda landa hafa farið fram áhugaverðar lýðræðistilraunir síðustu misseri, þrátt fyrir áhyggjur margra af getu lýðræðislegra stofnana til að takast á við djúpan pólitískan ágreining, efnahagskreppu og stórfelda truflun daglegs lífs vegna heimsfaraldursins sem nú stendur yfir.
Á næstu árum gætu þessar lýðræðisnýjungar umbreytt hinni rógrónu hugmynd um lýðræði eins og við þekkjum það, sem vettvang þar sem kjörnir fulltrúar sem móta stefnuna og taka ákvarðanir studdir sérhæfðri stjórnsýslu. Almenningur mun í auknu mæli krefjast þess—og búast við—að fá aðkomu að ákvörðunum á öllum stigum. Ekki aðeins að frá að greiða atkvæði um stefnumál valin af stjórnmálamönnum, heldur að taka þátt í mótun þessara stefnumála til lengri og skemmri tíma og vega og meta valkosti.
Málstofan hefst á umræðum um nýja bók Hélène Landemore, Open Democracy: Reinventing popular rule for the 21st Century, sem færir rök fyrir mótun lýðræðislegara stofnanaumgjörðar sem byggist á þátttöku almennings í ákvörðunartöku, fremur en valdi kjörinna fulltrúa. Lýðræði sem er ekki kosningamiðað en endurspeglar þrátt fyrir það betur vilja almennings en hefðbundið kosningalýðræði. Að lokinni kynningu höfundar heyrum við viðbrögð frá Salvöru Nordal, Jóni Ólafssyni og Alex Hudson sem munu ræða um meginniðurstöður bókarinnar og umræðu höfundar um gerð frumvarps Stjórnlagaráðs og merkingu þess fyrir lýðræðisþróun almennt.
Í seinnihluta málstofunnar verður fjallað um merkingu bókar Landemore í ljósi nýútkominnar skýrslu OECD, Innovative Citizen Participation and New Democratic Institutions: Catching the Deliberative Wave. Claudia Chwalisz frá The Open Government Unit mun kynna skýrsluna sem fjallar um hvernig rökræðulýðræðisaðferðir virka í ólíku menningarlegu samhengi og dregur fram lærdóma og leiðir sem gætu gagnast við stefnumótun fyrir stjórnmálamenn sem hafa áhuga á að þróa vandað almannasamráð.
Dagskrá málstofunnar:
Setning málstofu
Oddur Þorri Viðarsson, Forsætisráðuneytinu.
13.05-13.35 New book – Open Democracy: Reinventing Popular Rule for the 21st Century
Hélène Landemore, Yale University
13.35-14.00 Pallborðsumræður
Jón Ólafsson, HÍ. Salvör Nordal, HÍ og Alexander Hudson, rannskakandi hjá Max Planck stofnuninni.
14:00-14:20 Q&A
14:20-14:45 Break
14:45-15:15 Kynning á niðurstöðum OECD-skýrslunnar Catching the Deliberative Wave
Claudia Chwalisz, einn höfunda OECD skýrslunnar.
15:15-15:40 Panel discussion
Claudia Chwalisz, Hélène Landemore, Jón Ólafsson, Salvör Nordal, Alexander Hudson
15:40-16:00 Q&A
16:00 Lokaorð